Forsíða /
Fréttir /
Kvika eignastýring stofnar nýjan 8,5 milljarða lánasjóð – ACF V slhf.

Kvika eignastýring stofnar nýjan 8,5 milljarða lánasjóð – ACF V slhf.

Fimmtudagur 05. júní 2025

Kvika eignastýring hefur lokið fjármögnun á nýjum sjóð sem ber nafnið ACF V slhf. Sjóðurinn er samlagshlutafélag sem kemur að fjármögnun fyrirtækja. Sjóðurinn mun fjárfesta í skuldabréfum og lánum til fyrirtækja með veð í fasteignum. Heildaráskriftarloforð sjóðsins nema tæplega 8,5 milljörðum króna og er fjárfestingartímabil hans þrjú ár. Þeir sem lögðu sjóðnum til fé eru einkum lífeyrissjóðir. Rekstraraðili sjóðsins er Kvika eignastýring og stýrir félagið nú um 95 ma.kr. í sjóðum sem koma að fjármögnun fyrirtækja með mismunandi hætti. Á síðustu tveimur árum hefur Kvika eignastýring safnað alls um 17 milljörðum í lánasjóði.

Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jónas Reynir Gunnarsson en hann er jafnframt forstöðumaður sjóðastýringar hjá Kviku eignastýringu. Í fjárfestingateymi sjóðsins eru að auki Helen Ólafsdóttir, Daníel Þór Magnússon og Karvel Steindór Pálmason.