Forsíða /
Fréttir /
Útgreiðsla úr peningamarkaðssjóði MP

Útgreiðsla úr peningamarkaðssjóði MP

Föstudagur 12. desember 2014

Tíunda greiðsla úr Peningamarkaðssjóði MP hefur verið greidd inn á innlánsreikninga sjóðfélaga. Eftir þessa greiðslu hefur Peningamarkaðssjóður MP greitt út 89,20% af markaðsvirði sjóðsins eins og það var þegar sjóðurinn lokaði 6. október 2008, en það er hæsta útgreiðsluhlutfall peningamarkaðssjóða.

Nánari upplýsingar veitir þjónustuver MP banka í síma 540 3200 eða netfanginu thjonusta@mp.is.