Forsíða /
Fréttir /
Árshlutareikningur Kviku eignastýringar

Árshlutareikningur Kviku eignastýringar

Þriðjudagur 13. október 2020

Kvika eignastýring hf. hefur birt ársreikning fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020. Í byrjun september 2020 var nafni félagsins breytt úr Júpíter rekstrarfélag hf. í Kvika eignastýring hf.

Helstu niðurstöður árshlutareikningsins eru þessar:

  • Hagnaður eftir skatta nam 736 milljónum króna samanborið við 84 milljónir króna á sama tímabili árið áður.
  • Hreinar rekstrartekjur námu rúmlega 1.200 milljónum króna.
  • Eigið fé félagsins jókst um rúmlega 700 milljónir króna og stóð í 1.539 milljónum króna í lok júní.
  • Eignir í stýringu jukust um rúma 8 milljarða króna á tímabilinu og stóðu í 137,7 milljörðum króna í lok tímabilsins.

Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri Kviku eignastýringar:

Ég er afar ánægður með rekstur Kviku eignastýringar á fyrri hluta árs 2020. Félagið hefur verið í örum vexti síðustu misseri og tekjugrunnur félagsins er dreifður. Í september sl. færðist eignastýringarstarfsemi sem áður var í Kviku banka hf. til félagsins. Eftir þær breytingar er félagið orðið eitt stærsta eigna- og sjóðastýringarfyrirtæki landsins. Með þessum breytingum teljum við að hægt sé að bæta þjónustu við viðskiptavini okkar enn frekar með skýru og skilvirku skipulagi. Sameinað félag samanstendur af mjög hæfu og reynslumiklu starfsfólki og meginmarkmið félagsins er að veita viðskiptavinum áfram framúrskarandi þjónustu við ávöxtun fjármuna. Aukin áhersla er lögð á greiningarvinnu og að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á fjölbreytt úrval fjárfestingakosta, hvort sem er hér á landi eða erlendis. Einnig er það okkar trú að þessar breytingar muni styrkja starfsemina til frekari vaxtar.

Árshlutareikningur 30. júní 2020