Forsíða /
Fréttir /
Vísitölur Kviku eignastýringar í febrúar 2021

Vísitölur Kviku eignastýringar í febrúar 2021

Þriðjudagur 09. mars 2021

Hlutabréfamarkaðurinn var sterkur í febrúar og hækkuðu hlutabréfavísitölur Kviku eignastýringar mest í febrúar. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 8,7% og Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar um 7,5%.

Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar

Þróun vísitalna Kviku eignastýringar í febrúar 2021

2021 02 YTD.png

Gengi vísitalna í febrúar

Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, hækkaði um 3,4% og munaði þar mestu um 7,5% hækkun Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar, KVIKAEQI. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar stóð í stað en sömu sögu má segja um verðtryggingarhlutfallið sem lækkaði um 0,1%. Markaðsvirði vísitölunnar jókst um 80 ma.kr. í mánuðinum.

Ríkisskuldabréfavísitölur Kviku eignastýringar lækkuðu allar í febrúar, líkt og í janúar. Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 0,8% í mánuðinum á sama tíma og markaðsvirði hennar jókst um 19 ma.kr. Mesta breytingin var á óverðtryggðu vísitölunni, KVIKAxi, þar sem RIKB 21 0805 datt út úr vísitölunni en í lok janúar var það bréf tæp 11% af vísitölunni. Gengi vísitölunnar lækkaðu um 0,7% og lækkaði markaðsvirði hennar um 55 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,7% og lækkaði markaðsvirði hennar um 36 ma.kr. Veðtryggingarhlutfall vísitölunnar hækkaði um 3,8 prósentustig og jókst meðaltími vísitölunnar um 0,5 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAXGOVI, stóð nánast í stað en hækkunin var 0,005%. Litlar hreyfingar voru á vísitölunum á milli mánaða en þó lækkaði vísitala opinberra aðila, KVIKAp, um 0,4% en sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,2%. Meðallíftími Skuldabréfavísitölunnar var óbreyttur en verðtryggingarhlutfallið lækkaði úr 75,8% í 75,4%.

Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, hækkaði um 7,5% í mánuðinum og hefur nú hækkað um 11,5% það sem af er ári. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 109 ma.kr. í febrúar og í lok mánaðarins var vísitalan í fyrsta skiptið orðin meira en 50% af Markaðsvísitölu Kviku eignastýringar. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 8,7% í febrúar, mest allra vísitalna félagsins í mánuðinum.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,3% í febrúar. Helsta breytingin þar eru lægri meðallíftími vísitölunnar en hann lækkar úr 9,0 í 7,2.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í febrúar 2021

2021 02 EQI.png

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignasyring.is

Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar