Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði mest í mánuðinum eða um 3,8%. Hlutabréfamarkaðurinn gaf örlítið eftir í mars eftir kröftuga mánuði.
Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar
Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

Gengi vísitalna í mars
Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, hækkaði um 0,2%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar jókst úr 2,9 í 3,0 og jókst verðtryggingahlutfall vísitölunnar um 0,8%. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 17 ma.kr. í mánuðinum og munaði þar mestu um lækkun Hlutabréfavísitölunnar KVIKAEQI.
Ríkisskuldabréfavísitölur Kviku eignastýringar hækkuðu allar í mars eftir að hafa lækkað í janúar og febrúar. Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 1,8% í mánuðinum á sama tíma og markaðsvirði hennar jókst um 8 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 0,6% og hækkaði markaðsvirði hennar um 8 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 1,0% og markaðsvirði hennar um 16 ma.kr. Veðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 0,4 prósentustig en meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.
Skuldabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAXGOVI, hækkaði um 1,1% í mars þar sem markaðsvirði hennar jókst um 16 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 1,6% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,9%. Meðallíftími Skuldabréfavísitölunnar var óbreyttur.
Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, lækkaði um 0,6% í mánuðinum eftir kröftuga mánuði en vísitalan er upp um 10,9% frá áramótum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 43 ma.kr. í mars. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 1,2% í mars, mest allra vísitalna félagsins í mánuðinum.
Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði mest allra vísitalna í mánuðinum en hún hækkaði um 3,8%.
Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í mars 2021

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is
Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar