Forsíða /
Fréttir /
Vísitölur Kviku eignastýringar í apríl 2021

Vísitölur Kviku eignastýringar í apríl 2021

Þriðjudagur 04. maí 2021

Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði mest í mánuðinum eða um 7,0%. Hlutabréfamarkaðurinn náði sér aftur á strik í apríl eftir að hafa gefið örlítið eftir í mars.

Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar

Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

2021 04 YTD.png

Gengi vísitalna í apríl

Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, hækkaði um 1,8%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar lækkaði úr 3,0 í 2,9 og lækkaði verðtryggingahlutfall vísitölunnar um 0,5%. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 145 ma.kr. í mánuðinum og munaði þar mestu um hækkun Hlutabréfavísitölunnar KVIKAEQI.

Hreyfingar voru á Ríkisskuldabréfavísitölum Kviku eignastýringar. Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 1,2% í mánuðinum á sama tíma og markaðsvirði hennar jókst um 24 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,7% og hækkaði markaðsvirði hennar um 14 ma.kr. Í heildina stóð Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, í stað en lítil hreyfing var á gengi vísitölunnar á milli mánaða, þó markaðsvirði hennar hafi hækkað um 39 ma.kr. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 1,4 prósentustig en meðaltími vísitölunnar var óbreyttur í mánuðinum.

Skuldabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAXGOVI, hækkaði um 1,1% í apríl þar sem markaðsvirði hennar jókst um 14 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 2,0% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,8%. Meðallíftími og verðtryggingahlutfall Skuldabréfavísitölunnar var óbreytt.

Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, hækkaði um 6,3% í mánuðinum eftir rólegan mars mánuð en vísitalan er upp um 63,7% á milli ára. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 93 ma.kr. í apríl. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 7,0% í apríl, mest allra vísitalna félagsins í mánuðinum.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,7% í mánuðinum og jókst markaðsvirði hennar um 1 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 5,2% á árinu.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í apríl 2021

2021 04 EQI.png

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is

Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar