Forsíða /
Fréttir /
Vísitölur Kviku eignastýringar í maí 2021

Vísitölur Kviku eignastýringar í maí 2021

Þriðjudagur 01. júní 2021

Litlar hreyfingar voru á vísitölum Kviku eignastýringar á milli mánaða. Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði mest í mánuðinum og nam hækkunin 1,0%. Á sama tíma lækkaði óverðtryggða ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAxi, mest þó svo lækkunin hafi einungis verið 0,3%.

Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar

Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

2021 05 YTD.png

Gengi vísitalna í maí

Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, hækkaði um 0,1%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar stóð í stað en verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 0,2%. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 3 ma.kr. í mánuðinum.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 0,2% í mánuðinum og jókst markaðsvirði hennar um 1 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,3% og lækkaði markaðsvirði hennar um 3 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,1% en lítil hreyfing var á gengi vísitölunnar á milli mánuða. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 0,2 prósentustig en meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Litlar hreyfingar voru á Skuldabréfavísitölum Kviku eignastýringar í maí. Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, lækkaði um 0,1% í maí en markaðsvirði vísitölunnar stóð í stað. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 0,1% ásamt sértryggðu vísitölunni, KVIKAcb. Meðallíftími Skuldabréfavísitölunnar var óbreyttur en verðtryggingahlutfall vísitölunnar jókst um 0,1%.

Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, hækkaði um 0,3% í mánuðinum en vísitalan er upp um 51,9% á milli ára. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði einungis um 4 ma.kr. í maí. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 0,6% í maí.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 1,0% í mánuðinum, mest allra vísitalna félagsins í annars rólegum mánuði. Markaðsvirði vísitölunnar jókst um 4 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 6,2% á árinu.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í maí 2021

2021 05 EQI.png

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is

Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar