Markaðurinn tók við sér í júní eftir rólegan maí mánuð. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði mest í mánuðinum og nam hækkunin 4,5%. Engin vísitala lækkaði á milli mánaða en minnsta hækkunin var hjá vísitölu sértryggðra skuldabréfa en vísitalan hækkaði um 0,4%.
Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar
Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

Gengi vísitalna í júní
Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, hækkaði um 1,8%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði um 0,1 og er nú 2,8. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 179 ma.kr. í mánuðinum.
Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 0,4% í mánuðinum en markaðsvirði hennar lækkaði um 2 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 1,0% og hækkaði markaðsvirði hennar um 21 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,8%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,9 prósentustig en meðaltími vísitölunnar stóð í stað í mánuðinum.
Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,7% í júní en markaðsvirði vísitölunnar jókst um 2 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 1,4% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,4%.
Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, hækkaði um 2,6% í mánuðinum en vísitalan er upp um 53,3% á milli ára. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 159 ma.kr. í júní. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 4,5% í júní.
Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,6% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 6 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 6,6% á árinu.
Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í júní 2021

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is
Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar