Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, hækkaði mest í mánuðinum og nam hækkunin 4,4%. Engin vísitala lækkaði á milli mánaða en minnsta hækkunin var hjá vísitölu sértryggðra skuldabréfa en vísitalan hækkaði um 0,3%.
Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar
Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

Gengi vísitalna í júlí
Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, hækkaði um 2,7%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar lækkaði um 0,3 og er nú 2,6. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 312 ma.kr. í mánuðinum og stendur nú í rúmlega 4.000 ma.kr.
Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 1,1% í mánuðinum en markaðsvirði hennar hækkaði um 3 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 0,4% og hækkaði markaðsvirði hennar um 8 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,7%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,2 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.
Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,5% í júlí en markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 6 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 0,9% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,3%.
Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, hækkaði um 4,4% í mánuðinum en vísitalan hefur hækkað um 59,0% á milli ára. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 307 ma.kr. í júlí. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 3,0% í júlí.
Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,6% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 6 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 6,6% á árinu.
Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í júlí 2021

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is
Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar