Hlutabréfavísitala Kviku eignasýringar, KVIKAEQI, hækkaði mest í mánuðinum og nam hækkunin 4,9%. Ein vísitala lækkaði á milli mánaða en var það vísitala sértryggðra skuldabréfa en vísitalan lækkaði um 0,2%.
Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar
Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

Gengi vísitalna í ágúst
Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, hækkaði um 2,8%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar lækkaði um 0,1 og er nú 2,5. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 145 ma.kr. í mánuðinum og stendur nú í 4.151 ma.kr.
Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 0,8% í mánuðinum en markaðsvirði hennar hækkaði um 7 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,2% og hækkaði markaðsvirði hennar um 23 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,2%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,5 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,2 í mánuðinum.
Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,4% í ágúst en markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 4 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 0,6% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,4%.
Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, hækkaði um 4,9% í mánuðinum en vísitalan hefur hækkað um 66,5% á milli ára. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 111 ma.kr. í ágúst og stendur nú í 2.320 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 4,4% í ágúst.
Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,9% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 2 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 8,2% á árinu.
Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í ágúst 2021

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is
Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar