Forsíða /
Fréttir /
Vísitölur Kviku eignastýringar í september 2021

Vísitölur Kviku eignastýringar í september 2021

Föstudagur 01. október 2021

Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði mest í mánuðinum og nam hækkunin 1,3%. Þrjár vísitölur lækkuðu á milli mánaða en það voru Hlutabréfavísitalan KVIKAEQI, Ríkisskuldabréfavísitalan KVIKAGOVI og vísitala óverðtryggðra ríkisskuldabréfa, KVIKAxi.

Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar

Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

2021 09 YTD.png

Gengi vísitalna í september

Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, hækkaði um 0,1%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar stóð í stað og var 2,5. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 15 ma.kr. í mánuðinum og stóð í lok mánaðarins í 4.166 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 1,2% í mánuðinum en markaðsvirði hennar hækkaði um 4 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,7% og hækkaði markaðsvirði hennar um 1 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,2%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 0,3 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,9% í september en markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 13 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 1,3% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,8%.

Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, lækkaði um 0,1% í mánuðinum en vísitalan hefur þó hækkað um 67,3% á milli ára. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 3 ma.kr. í september og stendur nú í 2.318 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 0,3% í september.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,7% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 3 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 11,1% á milli ára.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í september 2021

2021 09 EQI.png

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is

Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar