Forsíða /
Fréttir /
Vísitölur Kviku eignastýringar í október 2021

Vísitölur Kviku eignastýringar í október 2021

Mánudagur 01. nóvember 2021

Hlutabréfavísitalan Kvikaeqcap hækkaði mest allra vísitalna Kviku eignastýringar í mánuðinum. Hækkunin nam 6,0% en þar á eftir kom Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, með 5,0% hækkun.

Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar

Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

2021 10 YTD.png

Gengi vísitalna í október

Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, hækkaði um 2,7%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar lækkaði úr 2,4 í 2,2. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 167 ma.kr. í mánuðinum og stóð í lok mánaðarins í 4.318 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 0,6% í mánuðinum en markaðsvirði hennar hækkaði um 10 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,5% og lækkaði markaðsvirði hennar um 8 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,5%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 1,1 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,4% í október en markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 49 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 1,0% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,1%.

Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, hækkaði um 5,0% í mánuðinum en vísitalan hefur hækkað um 64,7% á milli ára. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 117 ma.kr. í október og stendur nú í 2.437 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 6,0% í október, mest allra vísitalna Kviku eignastýringar.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,7% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 52 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 11,1% á milli ára.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í október 2021

2021 10 EQI.png

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is

Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar

Algengar spurningar