Forsíða /
Fréttir /
Vísitölur Kviku eignastýringar í nóvember 2021

Vísitölur Kviku eignastýringar í nóvember 2021

Mánudagur 06. desember 2021

Vísitala opinberra aðila: KVIKAp hækkaði mest allra vísitalna Kviku eignastýringar í mánuðinum. Hækkunin nam 1,15% en þar á eftir kom verðtryggða vísitalan, KVIKAi, með 1,11% hækkun.

Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar

Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

2021 11 YTD.png

Gengi vísitalna í nóvember

Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, lækkaði um 1,1%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði úr 2,3 í 2,4. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 35 ma.kr. í mánuðinum og stóð í lok mánaðarins í 4.250 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 1,1% í mánuðinum en markaðsvirði hennar hækkaði um 9 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 0,3% og hækkaði markaðsvirði hennar um 6 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,6%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 0,4 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,6% í nóvember en markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 13 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 1,1% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,3%.

Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, lækkaði um 2,5% í mánuðinum, mest allra vísitalna Kviku eignastýringar. Vísitalan hefur þó hækkað um 50,9% á milli ára. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 61 ma.kr. í nóvember og stendur nú í 2.375 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 2,3% í nóvember.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,7% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 16 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 10,5% á árinu.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í nóvember 2021

2021 11 EQI.png

Við vekjum athygli á því að útreikningar fyrir vísitölu opinberra aðila, KVIKAp, hefur verið uppfærð þar sem vísitalan innihélt ranglega bréf sem voru ekki með viðskiptavakt. Uppfærslan nær aftur til síðustu áramóta. Þar sem KVIKAp er hluti af KVIKAXGOVI og KVIKATRI, þá gefum við einnig út uppfærð gildi fyrir þær vísitölur. Vísitölugildin hafa verið uppfærð á heimasíðunni.

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is

Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar

Algengar spurningar

Leiðrétt gengi vísitalna á árinu 2021