Forsíða /
Fréttir /
Vísitölur Kviku eignastýringar í febrúar 2022

Vísitölur Kviku eignastýringar í febrúar 2022

Þriðjudagur 01. mars 2022

Gengi verðtryggðu vísitölunnar: KVIKAi hækkaði mest allra vísitalna Kviku eignastýringar í mánuðinum. Hækkunin nam 3,2%.

Einblöðungar vísitalna Kviku eignastýringar

Þróun vísitalna Kviku eignastýringar frá áramótum

2022 02 YTD.png

Gengi vísitalna í febrúar

Markaðsvísitala Kviku eignastýringar, KVIKATRI, lækkaði um 0,9%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar stóð í stað í 2,3. Markaðsvirði vísitölunnar var óbreytt á milli mánuða og stóð í lok mánaðarins í 4.224 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 3,2% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 42 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 0,2% og hækkaði markaðsvirði hennar um 5 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 1,3%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 2,7 prósentustig og meðaltími vísitölunnar hækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 1,5% í febrúar en markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 16 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 2,6% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 1,1%.

Hlutabréfavísitala Kviku eignastýringar, KVIKAEQI, lækkaði um 2,7% í mánuðinum, mest allra vísitalna Kviku eignastýringar. Vísitalan hefur hækkað um 19,1% á milli ára en lækkað um 5,9% frá áramótum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 64 ma.kr. í febrúar og stendur nú í 2.322 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 1,9% í febrúar.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,6% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 6 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 11,6% síðustu 12 mánuði.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku eignastýringar í febrúar 2022

2022 02 EQI.png

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku eignastýringar má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvikaeignastyring.is

Aðferðafræði vísitalna Kviku eignastýringar

Algengar spurningar