Forsíða /
Fréttir /
Iðunn framtakssjóður leiðir 6 milljóna evru fjármögnun Köru Connect

Iðunn framtakssjóður leiðir 6 milljóna evru fjármögnun Köru Connect

Þriðjudagur 03. maí 2022

Iðunn framtakssjóður, sem er í rekstri Kviku eignastýringar, er leiðandi fjárfestir í 6 milljóna evru fjármögnun hjá nýsköpunarfyrirtækinu Kara Connect, og verður stærsti hluthafi Köru Connect. Fjármögnuninni er ætlað að styðja við vöxt Köru Connect í Evrópu.

Kara Connect er fjölhæf vinnustöð sem tengir sérfræðinga í heilbrigðis- og velferðarumhverfi við skjólstæðinga í leit að hjálp. Kara Connect gerir sérfræðingum kleift að vista viðkvæmar persónuupplýsingar, bóka tíma, fá greiðslur, senda áminningar og eiga örugga fjarfundi við þá sem leita stuðnings hjá þeim.

„Í faraldrinum breyttust þarfir og viðhorf fólks til aðgengis að alls kyns þjónustu, en sérstaklega varð aukið aðgengi að heilbrigðis- og velferðarkerfinu afar brýn og aðkallandi þörf. Kara er fyrst og fremst aðgengislausn, örugg gátt sem tengir fólk saman, sem þýðir að hún er fullkomið svar við þessari þörf. Meðferð, stuðningur, ráðgjöf og fleira, þetta er allt innan seilingar í Köru. Í þokkabót sér Kara sjálfvirkt um allskonar umsýslumál fyrir sérfræðingana svo þeir geti einbeitt sér að því að vinna mikilvægari hlutann af vinnunni mun aðgengilegri, og við erum spennt að fá Iðunni að borðinu, því sjóðurinn hefur mikla reynslu af heilsu- og líftæknigeiranum.“ segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Köru Connect.

Pétur Richter, fjárfestingarstjóri Iðunnar, mun taka sæti í stjórn Köru í kjölfar fjármögnunarinnar. „Kara Connect er félag sem passar vel við fjárfestingarstefnu Iðunnar en félagið hefur sýnt fram á þörfina á slíkum stafrænum vettvangi sem félagið hefur þróað. Nú er stefnan sett á frekari landvinninga á erlendum mörkuðum. Við erum spennt að taka þátt í þeirri vegferð með starfsfólki Köru og öðrum hluthöfum.“ segir Pétur Richter hjá Iðunni framtakssjóði.

Iðunn framtakssjóður slhf. er sérhæfður framtakssjóður sem leggur áherslu á fjárfestingar á sviði lífvísinda og heilsutækni. Sjóðurinn er 7,3 milljarðar króna að stærð. Fjárfestingartímabil Iðunnar er 5 ár og einblínir sjóðurinn á fjárfestingar í fyrirtækjum með vandaðar áætlanir um viðskiptaþróun og stjórnendagetu til að stýra vexti og undirbúa félögin í næsta fasa uppskölunar. Kara Connect er þriðja fjárfesting Iðunnar en áður hefur Iðunn fjárfest í samheitalyfjaframleiðandanum Coripharma og lyfjaþróunarfélaginu EpiEndo Pharmaceuticals.

Kara Connect var stofnað 2015 af þeim Þorbjörgu Helga Vigfúsdóttur fyrrverandi borgarfulltrúa og námssálfræðingi og Hilmari Geir Eiðssyni hugbúnaðarsérfræðingi.