Forsíða /
Fréttir /
Iðunn framtakssjóður leiðir rúmlega milljarðs króna fjármögnun NeckCare

Iðunn framtakssjóður leiðir rúmlega milljarðs króna fjármögnun NeckCare

Þriðjudagur 17. maí 2022

Iðunn framtakssjóður, sem er í rekstri Kviku eignastýringar, er leiðandi fjárfestir í rúmlega milljarðs króna fjármögnun hjá heilbrigðistæknifyrirtækinu NeckCare. Fjármögnuninni verður varið til sölu og markaðssetningar á vörum NeckCare á Bandaríkjamarkaði ásamt því að styðja við frekari vöruþróun.

NeckCare hefur á undanförnum árum unnið að rannsóknum, einkaleyfisvernd og þróun hugbúnaðar til hlutlægra greiningar og meðferðar á hálsskaða. Vörur félagsins hafa verið notaðar hér á landi með góðum árangri en nýlega var opnuð sérstök höfuð- og hálsáverkamóttaka sem nýtir sér tækni NeckCare. 

Félagið opnaði einnig nýverið skrifstofu í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Winston-Salem í Norður Karólínu, og markar það upphafið að markaðssetningu félagsins í Bandaríkjunum. 

Heilbrigðislausnir NeckCare byggja á áralöngum vísindarannsóknum Dr. Eyþórs Kristjánssonar, sjúkraþjálfara sem þróaði og sannprófaði nýtt klínískt matspróf á hreyfistjórn hálsins.

Það var sérlega ánægjulegt að sjá núverandi hluthafa félagsins taka þátt í hlutafjáraukningu félagsins ásamt því að fá inn reynslumikinn fjárfesti eins og Iðunni með okkur í þessa vegferð.  Vörur félagsins gera heilbrigðisstarfsfólki kleift að mæla ástand sjúklings með skerta hreyfigetu í hálsi. Reynsla heilbrigðisstarfsmanna sýnir að árangur næst fyrr þegar framgangur í meðferð er mælanlegur. Að geta magntekið ástand hálsins og þar með ákvarðað viðeigandi meðferð og sett sjúklingum skýr markmið hjálpar sjúklingum í erfiðu bataferli. Opnun okkar á skrifstofu í Bandaríkjunum mun færa félaginu ný og spennandi sóknarfæri á stærsta heilbrigðistæknimarkaði heims. „ segir Þorsteinn Geirsson, framkvæmdastjóri NeckCare.

„Það er gríðarlega ánægjulegt fyrir okkur að fá jafn öflugan leiðandi fjárfestir eins og Iðunni inn í okkar hluthafahóp sem kemur jafnframt með mikla þekkingu og reynslu sem nýtist félaginu.  Eftir þrotlausar rannsóknir, einkaleyfisvernd og umfangsmikla vöruþróun þá er varan komin á þann stað sem hún á skilið, þ.e. að markaðssetja vöruna á framsæknasta heilbrigðistæknimarkaði veraldar. Jafnframt hafa opnast ný tækifæri fyrir vöruna eins og t.d. fjarendurhæfing, sem er ört vaxandi markaður, sérstaklega í Bandaríkjunum. Það er því spennandi vegferð fram undan hjá félaginu. Hálsskaði er eitt stærsta heilbrigðisvandamál okkar tíma og NeckCare hefur því mikið erindi inn á erlenda markaði.“  segir Sigurður Kr. Egilsson, stjórnarformaður NeckCare.

NeckCare er glæsileg viðbót við þau fyrirtæki sem eru í eignasafni Iðunnar. Iðunn hefur sérhæft sig í fjárfestingum í lífvísindum og heilbrigðistækni og því erum við spennt að geta tekið þátt í að flytja út íslenskt hugvit í heilbrigðistækni á Bandaríkjamarkað sem er verðmætasti markaður á þessu sviði í heimi. Við berum miklar vonir til fyrirtækisins og starfsfólks þess og hlökkum til samstarfsins. segir Hilmar Janusson hjá Iðunni framtakssjóði.

Iðunn framtakssjóður slhf. er sérhæfður framtakssjóður í rekstri Kviku Eignastýringar sem leggur áherslu á fjárfestingar á sviði lífvísinda og heilsutækni. Sjóðurinn er 7,3 milljarðar króna að stærð. Fjárfestingartímabil Iðunnar er 5 ár og einblínir sjóðurinn á fjárfestingar í fyrirtækjum með vandaðar áætlanir um viðskiptaþróun og stjórnendagetu til að stýra vexti og undirbúa félögin í næsta fasa uppskölunar. NeckCare er fjórða fjárfesting Iðunnar en áður hefur Iðunn fjárfest í samheitalyfjaframleiðandanum Coripharma, lyfjaþróunarfélaginu EpiEndo Pharmaceuticals og heilsutæknifyrirtækinu Köru Connect.

NeckCare er nýsköpunarfyrirtæki í heilbrigðistækni stofnað árið 2019 af Dr. Eyþóri Kristjánssyni og Þorsteini Geirssyni. Hjá fyrirtækinu starfar sterkur hópur vísindamanna, verkfræðinga, heilbrigðisstarfsfólks og viðskiptafræðinga sem telur 12 manns á Íslandi og í Bandaríkjunum. Markmið fyrirtækisins er að bæta árangur meðferða á stoðkerfissjúkdómum með þróun á tækni sem styður hlutlægt mat og einstaklingsmiðaða endurhæfingu.