Kvika - Sértryggð skuldabréf

Sæki gögn...
Markaðsefni

Athugið að þessi síða flokkast sem markaðsefni. Vinsamlegast kynnið ykkur útboðslýsingu sjóðsins og lykilupplýsingar áður en fjárfestingarákvörðun er tekin.

Um sjóðinn

Fyrir hverja er sjóðurinn

Sjóðurinn er ætlaður þeim fjárfestum sem vilja ávaxta fé sitt til lengri tíma með virkri stýringu í sértryggðum skuldabréfum. Sveiflur í gengi sjóðsins geta verið nokkrar og ætti fjárfesting í sjóðnum því að vera hugsuð til lengri tíma.

Fjárfestingarstefna

Markmið sjóðsins er að auka verðmæti eigenda sjóðsins með virkri stýringu í sértryggðum skuldabréfum. Með virkri stýringu getur meðallíftími og verðtryggingarhlutfall sjóðsins verið breytilegt frá einum tíma til annars.

Ávöxtun

Þróun sjóðs - veldu tímabil

Sæki gögn...

Sæki gögn...

Ársávöxtun

Eignasafn

Yfirlit yfir 6 stærstu útgefendur þann 31. júlí 2026
100,1%Allir útgefendur
ÚtgefandiSamtals
Stærstu útgefendurSamtals
Landsbankinn hf.33,4%
Ríkisskuldabréf27,7%
Arion banki hf.19,0%
Íslandsbanki hf.17,9%
Reiðufé1,4%
Byggðastofnun0,7%
Eignaflokkur
Vægi
Skuldabréf útgefin í samræmi við löggjöf 11/2008 um sértryggð skuldabréf50-75%
Skuldabréf og víxlar sem gefnir eru út af ríkissjóði, aðilum með ríkisábyrgð eða tryggðir með ríkisábyrgð, s.s. Íbúðalánasjóði0-50%

Fjárfestingateymi

Sjóðstjórar

Andri Már Rúnarsson
Sjóðstjóri
andri.runarsson@kvikaeignastyring.is
Stefán Helgi Jónsson
Sjóðstjóri
stefan@kvikaeignastyring.is

Fyrirvari

Þær upplýsingar sem hér koma fram eru óendurskoðaðar. Söguleg ávöxtun er hvorki áreiðanleg vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestum er ráðlagt að leita sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel þá fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur, lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða sem nálgast má á vefsíðu Kviku eignastýringar, www.kvikaeignastyring.is.

Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.

Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði nr. 116/2021 og laga um sérhæfða sjóði nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálastofnun með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands