
Athugið að þessi síða flokkast sem markaðsefni. Vinsamlegast kynnið ykkur útboðslýsingu sjóðsins og lykilupplýsingar áður en fjárfestingarákvörðun er tekin.
Sjóðurinn er ætlaður viðskiptavinum Kviku eignastýringar sem vilja ávaxta fé sitt til lengri tíma með virkri stýringu á skuldabréfum. Sjóðurinn hentar þeim sem vilja fjárfesta í dreifðu og blönduðu safni verðbréfa og hlutdeildarskírteina. Fjárfesting í sjóðnum ætti að vera hugsuð sem langtímafjárfesting þar sem sveiflur geta verið í verðmæti sjóðsins.
Markmið sjóðsins er að auka verðmæti eigenda hans með virkri stýringu á skuldabréfum. Leitast er eftir að ná fram áhættudreifingu með blönduðu safni skuldabréfa og innlána. Meðallíftími eigna sjóðsins getur verið breytilegur frá einum tíma til annars. Þá geta eignir sjóðsins verið hvort sem er verðtryggðar eða óverðtryggðar.
Sæki gögn...
Sæki gögn...
Eignaflokkur | Vægi |
|---|---|
| Innlán | 0-60% |
| Innlán fjármálafyrirtækja | 0-60% |
| Verðbréfasjóðir sem fjárfesta aðallega í innlánum | 0-60% |
| Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta sem fjárfesta aðallega í innlánum | 0-60% |
| Skuldabréf | 20-100% |
| Skuldabréf og víxlar útgefin af íslenska ríkinu eða með ábyrgð þess | 0-90% |
| Verðbréfasjóðir sem fjárfesta aðallega í ríkisskuldabréfum | 0-80% |
| Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta sem fjárfesta aðallega í ríkisskuldabréfum | 0-50% |
| Aðrir sérhæfðir sjóðir sem fjárfesta aðallega í skuldabréfum | 0-20% |
| Verðbréfasjóðir sem fjárfesta aðallega í skuldabréfum | 0-20% |
| Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta sem fjárfesta aðallega í skuldabréfum | 0-50% |
| Skuldabréf og víxlar önnur en getið er hér að ofan | 0-30% |
Vinsamlegast beinið fyrirmælum um kaup eða sölu í sjóðum Kviku eignastýringar beint til Kviku banka hf. eða Kviku eignastýringar hf.
Kvika banki hf.
Verðbréfaþjónusta
Sími: 540-3200
Netfang: verdbref@kvika.is
Kvika eignastýring hf.
Verðbréfaþjónusta
Sími: 522-0010
Netfang: verdbref@kvikaeignastyring.is
Þær upplýsingar sem hér koma fram eru óendurskoðaðar. Söguleg ávöxtun er hvorki áreiðanleg vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestum er ráðlagt að leita sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel þá fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur, lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða sem nálgast má á vefsíðu Kviku eignastýringar, www.kvikaeignastyring.is.
Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði nr. 116/2021 og laga um sérhæfða sjóði nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálastofnun með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands