Kvika - Hlutabréfavísitala

Sæki gögn...
Markaðsefni

Athugið að þessi síða flokkast sem markaðsefni. Vinsamlegast kynnið ykkur útboðslýsingu sjóðsins og lykilupplýsingar áður en fjárfestingarákvörðun er tekin.

Um sjóðinn

Fyrir hverja er sjóðurinn

Sjóðurinn er ætlaður þeim fjárfestum sem vilja ávaxta fé sitt til lengri tíma með vel dreifðu eignasafni með óvirkri stýringu í innlendum hlutabréfum. Sveiflur í gengi sjóðsins geta verið nokkrar og ætti fjárfesting í sjóðnum því að vera hugsuð til lengri tíma.

Fjárfestingarstefna

Markmið sjóðsins er að auka verðmæti sjóðsfélaga með vel dreifðu eignasafni sem samanstendur af hlutabréfum á mörkuðum NASDAQ OMX kauphallarinnar á Íslandi. Fjárfesting sjóðsins í innlendum hlutabréfum er í samræmi við Hlutabréfavísitöluna KVIKAeqcap.

Ávöxtun

Þróun sjóðs - veldu tímabil

Sæki gögn...

Sæki gögn...

Ársávöxtun

Eignasafn

Yfirlit yfir 10 stærstu útgefendur þann 31. júlí 2026
100,0%Allir útgefendur
ÚtgefandiSamtals
Stærstu útgefendurSamtals
JBT Marel Corp. IR13,4%
Arion banki hf.10,6%
Íslandsbanki hf.10,6%
Síldarvinnslan hf.8,3%
Brim hf.6,7%
Alvotech hf. - IR5,9%
Ísfélag hf.5,1%
Hagar hf.5,1%
Festi hf.3,7%
Amaroq Minerals Ltd. - Heimildarskírteini (DI) IS3,1%
Annað (18 útgefendur)27,5%
Eignaflokkur
Vægi
Hlutabréf skráð í NASDAQ OMX Nordic Iceland90-100%
Afleiður vegna stöðutöku0-20%
Innlán fjármálafyrirtækja0-10%

Fjárfestingateymi

Sjóðstjóri

Stefán Birgisson
Sjóðstjóri
stefanb@kvikaeignastyring.is
Davíð Björnsson
Sjóðstjóri
david@kvikaeignastyring.is

Fyrirvari

Þær upplýsingar sem hér koma fram eru óendurskoðaðar. Söguleg ávöxtun er hvorki áreiðanleg vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestum er ráðlagt að leita sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel þá fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur, lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða sem nálgast má á vefsíðu Kviku eignastýringar, www.kvikaeignastyring.is.

Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.

Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði nr. 116/2021 og laga um sérhæfða sjóði nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálastofnun með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands