Kvika - Heimur

Sæki gögn...
Markaðsefni

Athugið að þessi síða flokkast sem markaðsefni. Vinsamlegast kynnið ykkur útboðslýsingu sjóðsins og lykilupplýsingar áður en fjárfestingarákvörðun er tekin.

Um sjóðinn

Fyrir hverja er sjóðurinn

Sjóðurinn er ætlaður viðskiptavinum Kviku eignastýringar sem vilja ávaxta fé sitt til lengri tíma í blönduðu safni hlutabréfa og skuldabréfa á erlendum mörkuðum. Fjárfestingar sjóðsins eru í verðbréfasjóðum, sérhæfðum sjóðum og stökum verðbréfum. Sjóðnum er stýrt með virkum hætti og er hann opinn öllum fjárfestum. Fjárfesting í sjóðnum ætti að vera hugsuð sem langtímafjárfesting þar sem sveiflur geta verið í verðmæti sjóðsins.

Fjárfestingarstefna

Sjóðurinn fjárfestir í erlendum verðbréfasjóðum, sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta og öðrum sérhæfðum hlutdeildarsjóðum auk stakra verðbréfa. Sjóðir sem fjárfest er í skulu hafa staðfestu í Bretlandi, innan EES eða í Norður-Ameríku. Megináhersla er á sjóði sem fjárfesta í Norður-Ameríku og Evrópu, en þó geta þeir einnig verið fjárfestir í öllum landsvæðum.

Ávöxtun

Þróun sjóðs - veldu tímabil

Sæki gögn...

Sæki gögn...

Ársávöxtun

Eignasafn

Yfirlit yfir 10 stærstu útgefendur þann 31. júlí 2026
88,3%Allir útgefendur
ÚtgefandiSamtals
Stærstu útgefendurSamtals
Threadneedle Lux19,8%
T.Rowe Price Funds -Global Focused Growth Equity I18,0%
Wellington Global Quality Growth Fund15,4%
Xtrackers DAX UCITS ETF9,2%
iShares Core MSCI World UCITS ETF ACC7,8%
Hermes Investment Funds Plc - Global Emerging mark7,6%
ASML Holding NV2,8%
Novo Nordisk2,6%
Alphabet Inc. Rg. Shares A2,3%
Taiwan Semiconductor Manufacturing Co Ltd.1,9%
Annað (3 útgefendur)0,9%

Önnur samsetning

Yfirlit þann 30. júní 2026
100,0%Allir útgefendur
ÚtgefandiSamtals
Stærstu útgefendurSamtals
Hlutabréf91,1%
Reiðufé8,9%
Skuldabréf0,0%
Eignaflokkur
Vægi
Hlutabréf0-100%
Verðbréfasjóðir sem fjárfesta í hlutabréfum0-100%
Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta sem fjárfesta í hlutabréfum0-80%
Aðrir sérhæfðir sjóðir sem fjárfesta aðallega í hlutabréfum og tengdum afurðum0-20%
Skráð hlutabréf0-20%
Óskráð hlutabréf0-10%
Skuldabréf0-100%
Verðbréfasjóðir sem fjárfesta aðallega í ríkisskuldabréfum0-100%
Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta sem fjárfesta aðallega í ríkisskuldabréfum0-80%
Aðrir sérhæfðir sjóðir sem fjárfesta aðallega í skuldabréfum og tengdum afurðum0-20%
Verðbréfasjóðir sem fjárfesta aðallega í skuldabréfum0-100%
Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta sem fjárfesta aðallega í skuldabréfum0-80%
Skuldabréf og víxlar útgefin af eða með ábyrgð ríkissjóðs0-35%
Önnur skuldabréf og víxlar0-20%
Innlán0-80%
Innlán fjármálafyrirtækja0-80%
Verðbréfasjóðir sem fjárfesta aðallega í innlánum0-80%
Sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta sem fjárfesta aðallega í innlánum0-80%

Fjárfestingateymi

Sjóðstjórar

Örvar Snær Óskarsson
Sjóðstjóri
orvar@kvikaeignastyring.is
Vaka Jóhannesdóttir (í orlofi)
Sjóðstjóri
vaka@kvikaeignastyring.is

Fyrirvari

Þær upplýsingar sem hér koma fram eru óendurskoðaðar. Söguleg ávöxtun er hvorki áreiðanleg vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestum er ráðlagt að leita sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel þá fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur, lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða sem nálgast má á vefsíðu Kviku eignastýringar, www.kvikaeignastyring.is.

Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.

Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði nr. 116/2021 og laga um sérhæfða sjóði nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálastofnun með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands