Fagfjárfestasjóðurinn Credit Opportunity Fund

Um sjóðinn

Fyrir hverja er sjóðurinn

Fagfjárfestasjóðurinn Credit Opportunity Fund er sérhæfður sjóður sem fjárfestir í skuldabréfum og lánasamningum útgefnum af fyrirtækjum og lögaðilum. Sjóðurinn er einungis opinn fagfjárfestum og veitir því ekki viðtöku fjár frá almenningi.

Fjárfestingarstefna

Sjóðurinn fjárfestir í öllum tegundum skuldaskjala, til dæmis lánasamningum og skuldabréfum. Sjóðnum er jafnframt heimilt að fjárfesta í hlutdeildarskírteinum hvers kyns sjóða, svo sem verðbréfasjóða, fjárfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða.

Grunnupplýsingar

Rekstrarfélag

Kvika eignastýring hf.

Sjóðsform

Sérhæfður sjóður

Skráningarland

Ísland

Stofnár

2015

Grunnmynt

ISK

Vörslufélag

Kvika banki hf.

Sjóðstjóri

Helen Ólafsdóttir

Fjárfestum er ráðlagt að leita sér sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur og útboðslýsingar sjóða.

Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.

Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021 og laga um sérhæfða sjóði, nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 3. gr. og 1.-3. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002