Fyrir hverja er sjóðurinn
Alda Credit Fund slhf. er lokaður sérhæfður sjóður, þ.e. ekki opinn til fjárfestingar. Sjóðurinn er samlagshlutafélag og er útgefandi skuldabréfaflokksins ACF 15 1 sem skráður er í Kauphöll Íslands.
Fjárfestingarstefna
Alda Credit Fund slhf. hefur það að meginmarkmiði að fjárfesta í skuldabréfum, lánum og öðrum skuldaviðurkenningum fyrirtækja og annarra aðila, sem gefið geta ávöxtun umfram ríkistryggð skuldabréf. Félagið mun leitast við að fjárfesta í dreifðu safni þar sem líftími hverrar fjárfestingar getur verið misjafn og vextir verið ýmist fastir eða breytilegir.
Fjárfestum er ráðlagt að leita sér sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur og útboðslýsingar sjóða.
Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði, nr. 128/2011 og laga um sérhæfða sjóði, nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 3. gr. og 1.-3. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002.