Fyrir hverja er sjóðurinn
Kvika - Atom hs. er lokaður sérhæfður sjóður. Hlutdeildarskírteini sjóðsins eru aðeins markaðsett fagfjárfestum.
Fjárfestingarstefna
Markmið sjóðsins er að ávaxta þá fjármuni sem greiddir eru inn í sjóðinn, og tekjur af eignum sjóðsins.
Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í lánum og kröfum á einstaklinga og fyrirtæki, til dæmis lánasamningum og skuldabréfum. Sjóðnum er einnig heimilt að eiga aðrar eignir, t.d. hlutafé, áskotnist honum þær vegna annarra eigna sinna s.s. ef ganga þarf að veði eða tryggingum. Þá er sjóðnum heimilt að stunda fjárfestingar sem teljast hluti af eðlilegri lausafjárstýringu og áhættustýringu svo sem m.t.t. vaxta, verðbólgu og gjaldmiðla.
Jafnframt hefur sjóðurinn heimild til skuldsetningar. Sjóðnum er óheimilt að veðsetja eignir sínar.
Sjóðnum er heimilt að eiga viðskipti við eigendur hlutdeildarskírteina, hvort sem er einstaka eigendur eða alla, svo sem með sölu á skuldabréfum eða með viðskiptum með eignir sjóðsins.
Fjárfestum er ráðlagt að leita sér sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur og útboðslýsingar sjóða.
Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði, nr. 128/2011 og laga um sérhæfða sjóði, nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 3. gr. og 1.-3. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002.