Fyrir hverja er sjóðurinn
Kvika - Fjarskiptainnviðir hs. er lokaður sérhæfður sjóður, þ.e. ekki opinn til fjárfestingar.
Fjárfestingarstefna
Markmið sjóðsins er að ávaxta þá fjármuni sem greiddir eru inn í sjóðinn í staðinn fyrir hlutdeildarskírteini með útgáfu skuldabréfa. Sjóðurinn fjárfestir með það að markmiði að tryggja að hann geti mætt greiðsluflæði vegna skuldabréfa sem sjóðurinn hefur gefið út. Fjárfestingar sjóðsins munu standa að baki greiðslu skuldbindinga hans og mun því greiðslugeta sjóðsins vera háð greiðslugetu
mótaðila hans. Nánar tiltekið mun sjóðurinn fjárfesta í lánssamningum við félög sem tengjast kaup- og endurleigu á óvirkum farsímainnviðum Sýnar hf. og Nova hf. Auk þess hefur sjóðurinn heimild til þess að fjárfesta í innlánum fjármálafyrirtækja og eiga reiðufé.
Fjárfestingar sjóðsins í öðrum eignum eru óheimilar.
Rekstraraðila er óheimilt að veðsetja eignir og tekjur sjóðsins.
Fjárfestum er ráðlagt að leita sér sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur og útboðslýsingar sjóða.
Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði, nr. 128/2011 og laga um sérhæfða sjóði, nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 3. gr. og 1.-3. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002.