Fyrir hverja er sjóðurinn
Kvika - ÍSH hs. er lokaður sérhæfður sjóður, þ.e. ekki opinn til fjárfestingar. Sjóðurinn er útgefandi skuldabréfaflokksins FISH 14 1 sem skráður er í Kauphöll Íslands.
Fjárfestingarstefna
Markmið sjóðsins er að ávaxta fjármuni sjóðsins. Eignir sjóðsins munu standa að baki greiðslu skuldbindinga sjóðsins. Sjóðurinn fjárfestir með það að markmiði að tryggja að hann geti mætt greiðsluflæði vegna skuldaskjala og skuldbindinga sem sjóðurinn hefur gefið út og lánasamninga sem hann hefur gert.
Fjárfestingastefna sjóðsins er bundin við fjárfestingar í veðskuldabréfi útgefnu af Fasteignafélaginu Laugardal ehf., verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum sem fjárfesta í skuldabréfum, víxlum og innlánum og innlánum fjármálafyrirtækja og reiðufé.
Fjárfestum er ráðlagt að leita sér sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur og útboðslýsingar sjóða.
Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði, nr. 128/2011 og laga um sérhæfða sjóði, nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 3. gr. og 1.-3. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002.