Fyrir hverja er sjóðurinn
Kvika - Kredit stutt hs. er sérhæfður sjóður sem fjárfestir í skuldabréfum og lánasamningum útgefnum af fyrirtækjum og lögaðilum. Sjóðurinn er einungis opinn fagfjárfestum og veitir því ekki viðtöku fjár frá almenningi.
Fjárfestingarstefna
Markmið sjóðsins er að ávaxta fjármuni sjóðsins með kaupum á kröfuréttindum, hvort sem um er að ræða lán eða kröfu á grundvelli lánssamnings eða skuldabréfs. Sjóðurinn fjárfestir þannig í vaxtaberandi kröfum þannig að vaxtamunur myndist, sem skilar ávöxtun á fjármunum sjóðsins.
Sjóðnum er jafnframt heimilt að fjárfesta í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða, fjárfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða. Auk þess hefur sjóðurinn heimild til að fjárfesta í innlánum fjármálafyrirtækja. Þá er sjóðnum heimilt að stunda fjárfestingar sem teljast hluti af eðlilegri lausafjárstýringu og áhættustýringu með tilliti til vaxta og verðbólgu. Sjóðnum er heimilt að eiga viðskipti með afleiður.
Fjárfestum er ráðlagt að leita sér sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur og útboðslýsingar sjóða.
Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði, nr. 128/2011 og laga um sérhæfða sjóði, nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 3. gr. og 1.-3. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002.