Fyrir hverja er sjóðurinn
Veðskuld slhf. er lokaður sérhæfður sjóður, þ.e. ekki opinn til fjárfestingar. Sjóðurinn er samlagshlutafélag og er útgefandi skuldabréfaflokksins VEDS2 17 01 sem skráður er í Kauphöll Íslands.
Fjárfestingarstefna
Sjóðurinn fjárfestir með það að markmiði að tryggja að greiðsluflæði fjárfestingaeigna sjóðsins geti á hverjum tíma mætt greiðsluskyldum sjóðsins, skuldbindingum sem sjóðurinn hefur gengist undir með útgáfu hlutdeildarskírteina og skuldabréfa. Sjóðnum er heimilt að fjárfesta í skuldabréfum sem tryggð eru með veði í atvinnuhúsnæði og einnig í innlánum fjármálafyrirtækja, lausafjársjóðum og reiðufé.
Fjárfestum er ráðlagt að leita sér sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur og útboðslýsingar sjóða.
Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði, nr. 128/2011 og laga um sérhæfða sjóði, nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 3. gr. og 1.-3. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002.