Lög um fjármálafyrirtæki
Kvika eignastýring hf. er sjálfstæð fjármálastofnun í skilningi laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og fellur því undir gildissvið laganna. Tilgangur laganna er að tryggja að fjámálafyrirtæki séu rekin á heilbrigðan og eðlilegan hátt með hagsmuni viðskiptavina, hluthafa, stofnfjáreigenda og alls þjóðarbúsins að leiðarljósi.
Lög um hlutafélög
Kvika eignastýring hf. er hlutafélag og fellur því undir gildissvið laga um hlutafélög nr. 2/1995. Reglur hlutafélagalaga innihalda m.a. réttarreglur sem lúta að starfsemi fyrirtækja, hlutafé, hlutabréfum, stjórnskipulagi, hluthafafundum, endurskoðun og ábyrgð stjórnenda.
Lög um verðbréfasjóði og lög um sérhæfða sjóði
Kvika eignastýring hf. hefur m.a. starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða skv. lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og er með starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. lögum nr. 45/2020. Framangreind lög taka til starfsemi og reksturs verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða. Kvika eignastýring hf. rekur ýmsa slíka sjóði og innihalda lögin m.a. réttarreglur sem lúta að starfsemi sjóða, hlutdeildarskírteina, réttindum hlutdeildarskírteinishafa og stjórnskipulagi svo dæmi séu nefnd.
Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Þann 1. janúar 2019 tóku gildi lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018, sem gilda m.a. um fjármálafyrirtæki. Markmið laganna er að koma í veg fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka með því að skylda aðila sem stunda starfsemi er kann að verða notuð til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka. Lögin gera kröfu um að eftirlitsskyldir aðilar þekki deili á viðskiptamönnum sínum og starfsemi þeirra og tilkynna um það til lögbærra yfirvalda vakni grunur um eða verði þeir varir við slíka ólögmæta starfsemi. Lögin byggja á grunni eldri laga en fela þó í sér talsverðar breytingar og leggja þyngri skyldur á fjármálafyrirtæki sem hafa áhrif á viðskiptamenn. SFF hefur gefið út upplýsingaefni þar sem fram koma helstu breytingar sem lögin koma til með að hafa fyrir viðskiptamenn. Efnið er aðgengilegt hér fyrir neðan.
Upplýsingablað SFF fyrir einstaklinga
Upplýsingablað SFF fyrir lögaðila
Viðskipti með fjármálagerninga
Þann 1. september 2021 tóku gildi lög um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021. Með lögunum eru innleidd ákvæði tilskipunar Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga og MiFIR reglugerð um sama efni einu nafni jafnan nefnt MiFID 2 regluverkið. Með innleiðingu MiFID 2 regluverksins í íslenskan rétt gilda nú sömu reglur um fjárferstavernd, gagnsæi í viðskiptum og fleira sem viðkemur viðskiptum með fjármálagerninga hér á landi og annars staðar í Evrópu.
Í tilefni lagasetningarinnar hefur Kvika eignastýring uppfært viðskiptaskilmála vegna verðbréfaviðskipta sem bera nú heitið Skilmálar Kviku eignastýringar hf. vegna fjárfestingarþjónustu. Þá hefur félagið uppfært upplýsingar um flokka fjárfesta og lýsingu á eðli og áhættu fjármálagerninga auk þess sem nú eru veittar ákveðnar upplýsingar um kostnað og gjöld vegna viðskipta með fjármálagerninga.
Félög með náin tengsl við Kviku eignastýringu hf. sbr. 5. gr. skilmála bankans vegna fjárfestingarþjónustu eru eftirfarandi:
- Kvika eignastýring hf.
- Kvika banki hf., móðurfélag Kviku eignastýringar hf.
- Akta sjóðir hf., móðurfélag á 18,6% hlut í félaginu.
Eiginleikar og áhætta fjármálagerninga
Flokkar fjárfesta
Upplýsingagjöf vegna áhættu tengdri sjálfbærni
Með lögum nr. 25/2023 um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, voru ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2088 („SFDR“) innleidd í íslenskan rétt. SFDR leggur skyldur á aðila á fjármálamarkaði að birta upplýsingar um það hvernig áhætta tengd sjálfbærni er felld inn í fjárfestingarákvarðanir sem og í ráðgjöf og hvort, og þá hvernig, tekið er tillit til neikvæðra áhrifa á sjálfbærniþætti við fjárfestingarákvarðanir.
Samþætting sjálfbærniáhættu við fjárfestingaákvarðanir (sbr. 3.gr SFDR)
Áhætta tengd sjálfbærni er skilgreind sem atburður eða ástand á sviði umhverfismála, félagsmála eða stjórnarhátta sem gæti, ef hann gerist, haft raunveruleg eða hugsanleg veruleg neikvæð áhrif á virði fjárfestingarinnar sbr. 22. tölul. 2.gr. SFDR.
Þær upplýsingar sem ber að birta eiga að gera endanlegum fjárfestum kleift að taka upplýstari fjárfestingarákvarðanir og eiga þær því að vera hluti af þeirri upplýsingagjöf sem veitt er fjárfestum áður en samningur er gerður.
Kvika eignastýring hefur gefið út stefnu í samræmi við 3.gr. SFDR þar sem félagið lýsir því hvernig áhætta tengd sjálfbærni er felld inn í fjárfestingarákvörðunarferlið.
Sjálfbærniáhættustefna
Yfirlýsing varðandi neikvæð áhrif fjárfestingaákvarðana á sjálfbærniþætti (e. Principal Adverse Impact on sustainability factors eða „PAI“) (sbr. 4.gr. SFDR)
Sjálfbærniþættir eru skilgreindir sem umhverfis-, félags- og starfsmannatengd mál, virðing fyrir mannréttindum og mál sem varða baráttu gegn spillingu og mútum, sbr. 24. tölul., 2. gr. SFDR. Með neikvæðum áhrifum er almennt átt við helstu neikvæðu áhrif fjárfestingarákvarðana á þessa þætti.
Kvika eignastýring hefur gefið út yfirlýsingu í samræmi við 4. gr. SFDR þar sem félagið lýsir því hvernig og hvort tekið er tillit til neikvæðra áhrifa fjárfestingaákvarðana á sjálfbærniþætti.
Yfirlýsing um neikvæð áhrif á sjálfbærniþætti
Samþætting sjálfbærniáhættu í starfskjarastefnu (sbr. 5.gr. SFDR)
Kvika eignastýring hefur gefið út yfirlýsingu í samræmi við 5. gr. SFDR sem geymir upplýsingar um hvernig starfskjör eru tengd sjálfbærniáhættu.
Yfirlýsing vegna starfskjarastefnu
Lagalegur fyrirvari vegna vefsíðu
Upplýsingar á vefsíðu Kviku eignastýringar hf. eru birtar samkvæmt bestu vitund Kviku eignastýringar hf. á hverjum tíma. Kvika eignastýring hf. ábyrgist ekki réttmæti upplýsinganna hvort sem þær koma frá félaginu eða þriðja aðila. Upplýsingarnar kunna að breytast án fyrirvara.
Upplýsingar á vefsíðu Kviku eignastýringar hf. eru almenns eðlis og fela ekki í sér tilboð eða ráðleggingar um kaup eða sölu fjármálagerninga. Notendur vefsíðunnar bera einir ábyrgð á fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli þeirra upplýsinga sem birtast á vefsíðunni. Kvika eignastýring hf. ber hvorki ábyrgð á tjóni sem rekja má til upplýsinga sem birtast á vefsíðu félagsins né heldur á tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vefsíðu félagsins. Kvika eignastýring hf. ber heldur ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefsíðuna um lengri eða skemmri tíma.
Kvika eignastýring hf. á höfundarrétt á upplýsingum sem birtast á vefsíðunni nema annað sé tekið fram eða verði leitt af eðli máls. Óheimilt er að dreifa upplýsingunum, afrita þær eða nýta með öðrum hætti án skriflegs samþykkis Kviku eignastýringar hf.
Viðskipti með fjármálagerninga eru áhættusöm í eðli sínu. Verðbreytingar í fortíð gefa ekki endilega vísbendingu um verðbreytingar í framtíð. Kvika eignastýring hf. hvetur viðskiptavini sína til að afla sér upplýsinga um eðli verðbréfaviðskipta og eftir atvikum annað sem viðkemur verðbréfaviðskiptum hjá ráðgjöfum félagsins.
Lagalegur fyrirvari vegna tölvupósts
Tölvupóstar og viðhengi sem send eru frá netföngum skráðum á Kviku eignastýringu hf. kunna að innihalda trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og eru eingöngu ætluð skráðum viðtakendum. Sé efni tölvupósts og viðhengja ótengt starfsemi Kviku eignastýringar hf. er sendandi einn ábyrgur. Kvika eignastýring hf. vekur athygli á því að hvers konar upplýsingagjöf, afritun eða dreifing þeirra upplýsinga sem fram koma í tölvupóstum og viðhengjum er óleyfileg og kann að varða við lög. Sért þú ekki réttur viðtakandi tölvupóstsins ertu vinsamlega beðinn um að tilkynna sendanda að þér hafi borist þessi tölvupóstur fyrir mistök, að því loknu að eyða tölvupóstinum og viðhengjum hans, ef einhver eru, án þess að geyma afrit, samanber lagaskyldu þar að lútandi skv. 9. mgr. 47. gr. laga nr. 81/2003, um fjarskipti.
Kvika eignastýring hf. ber ekki ábyrgð á rangri eða ófullgerðri sendingu upplýsinganna sem tölvupósturinn inniheldur, né heldur á töfum á afhendingu hans eða tjóni sem kann að verða á tölvukerfi móttakanda. Kvika eignastýring hf. ábyrgist hvorki öryggi tölvupóstsins né að hann sé laus við vírusa eða að íhlutun þriðja aðila hafi ekki átt sér stað.
Upplýsingar um fyrirtæki eða fjármálagerninga hafa eingöngu upplýsingagildi og fela ekki í sér tilboð eða ráðleggingar um kaup eða sölu verðbréfa eða þátttöku í fjárfestingum.
Upptaka símtala, geymsla og vistun gagna
Til að tryggja öryggi viðskiptamanns og félagsins er viðskiptamanni kunnugt um að viðskiptasímtöl við félagið kunna að vera hljóðrituð án sérstakrar tilkynningar í hvert sinn. Hið sama gildir um samtöl í gegnum Office Communicator.
Símaupptökur eru gerðar á grundvelli heimildar í lögum um fjarskipti.
Viðskiptamanni er kunnugt um að upptökur kunna að verða lagðar fram í dómsmáli og/eða notaðar sem sönnunargagn í öðrum tilvikum komi upp ágreiningur um hvað aðilum fór á milli. Að öðru leyti skal félagið fara með upptökur líkt og með aðrar upplýsingar er lúta þagnarskyldu, sbr. 58. til 60. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Öll gögn sem innihalda upplýsingar um viðskipti viðskiptamanna og framkvæmd þeirra eru vistuð hjá félaginu í að lágmarki fimm ár.
Vefkökur
Kvika eignastýring hf. („Kvika eignastýring“) notar vefkökur (e. cookies) til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu kvikaeignastyring.is, bæta þjónustu Kviku eignastýringar og fleira. Vefkökur gera Kviku eignastýringu kleift að senda ákveðnar upplýsingar í vafra notenda sem getur auðveldað notendum aðgang með margs konar aðgerðum. Vefkökur geyma ekki persónuupplýsingar en geta innihaldið texta, númer og dagsetningar, svo dæmi séu tekin. Með því að samþykkja notkun Kviku eignastýringar á vefkökum er Kviku eignastýringu m.a. veitt heimild til að sníða leit og þjónustu við gesti vefsins til samræmis við fyrri notkun þeirra og auðkenningu, að muna eftir fyrri aðgerðum, að þróa og bæta þjónustu vefsins kvikaeignastyring.is og að safna upplýsingum um umferð og notkun vefsvæðisins.
Þú getur lokað fyrir notkun á vefkökum í stillingum vafrans sem þú notar. Í flestum vöfrum er að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að slökkva á vefkökum.
Hvað eru vefkökur (e. cookies)?
Vefkökur eru litlar textaskrár sem vistaðar eru á tölvu eða öðrum snjalltækjum þegar vefsvæði Kviku eignastýringar er heimsótt í fyrsta sinn. Þegar þú heimsækir vefsíðuna næst í sama tæki man það eftir þér og hvernig þú notaðir síðuna.
Kvika eignastýring notar vefkökur í þeim tilgangi að bæta virkni vefsíðunnar með það að markmiði að bæta þjónustu við notendur. Það er stefna Kviku eignastýringar að nota vefkökur með ábyrgum hætti. Kvika eignastýring notar vefkökur til að sníða vefsvæðið að þörfum notenda t.d. til að vista stillingar notenda, til að vinna tölfræðilegar upplýsingar, til að greina umferð um vefsvæðið og í markaðslegum tilgangi.
Nauðsynlegar vefkökur (vefkökur frá fyrsta aðila)
Vefsíða Kviku eignastýringar notar bæði eigin vefkökur og vefkökur frá þriðja aðila. Eigin vefkökur Kviku eignastýringar eru kökur sem verða til á síðu Kviku eignastýringar. Vefkökur senda eingöngu upplýsingar til Kviku eignastýringar.
Nauðsynlegar vefkökur virkja eiginleika á vefsvæðinu sem verða að vera til staðar svo vefsvæðin virki eins og ætlast er til. Nauðsynlegar vefkökur eru vefkökur frá fyrsta aðila sem eingöngu eru notaðar af Kviku eignastýringu. Hér undir falla til dæmis kökur sem muna hvort notandinn er skráður inn á vefsvæði Kviku eignastýringar eða hvaða sérstöku stillingar notandinn hefur valið.
Vefkökur frá þriðja aðila
Vefkökur frá þriðja aðila eru vefkökur sem verða til vegna aðgerða sem stafa frá öðrum aðila en þeim sem rekur síðuna sem þú ert að heimsækja, aðila sem Kvika eignastýring er í samstarfi við eða hagnýtir þjónustu frá. Vefkökur þriðja aðila gera það að verkum að þessir aðilar geta þekkt tækið þitt aftur og eru tilkomnar vegna þjónustu sem félagið notar.
Vefkökur frá þriðja aðila eru notaðar til að greina umferð um vefsíðu Kviku eignastýringar til að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun þess og gera leit að tilteknu efni auðveldari.
Hvernig stilli ég vefkökur?
Vakin er athygli á því að þriðju aðilar, s.s. þeir sem veita markaðs- eða greiningarþjónustu á netinu, nota einnig vefkökur. Upplýsingar um notkun þeirra á vefkökur er hægt að finna á vefsíðum þeirra.
Notendur geta lokað á vefkökur með því að breyta stillingum á vafra. Með þeim hætti geta notendur dregið til baka samþykki sitt fyrir notkun á vafrakökum. Athuga skal að ef lokað er á allar kökur, þ.m.t. nauðsynlegar kökur, mun það hafa áhrif á virkni vefsíðunnar.
Nánari upplýsingar um hvernig stilla má vefkökur á mismunandi vöfrum má finna hér.
Meðferð Kviku eignastýringar á persónuupplýsingum
Kvika eignastýring hf. hefur sett sér persónuverndarstefnu sem finna má hér:
Persónuverndarstefna
Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vefkökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Kvika lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en að ofan greinir og þá verða upplýsingarnar ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.