_____
Kvika eignastýring hefur tekið saman upplýsingar sem tengjast sjálfbærni og eru mikilvægar fyrir fjárfesta við töku ákvörðunar um að fjárfesta í vörum félagsins. Upplýsingagjöfin er miðuð að kröfum SFDR og er hún nánar útlistuð í umfjöllun hér að neðan.
______
Ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/2088 um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (e. Sustainable Finance Disclosure Regulation eða „SFDR“) kveður á um samræmdar reglur fyrir aðila sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar um upplýsingagjöf til fjárfesta tengt sjálfbærni og sjálfbærniáhættu. Reglugerðin var lögfest hér á landi með lögum nr. 26/2023 um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu.
SFDR leggur meðal annars skyldur á aðila sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar að birta upplýsingar á vefsvæði sínu um það hvernig áhætta tengd sjálfbærni er felld inn í fjárfestingarákvarðanir og í ráðgjöf og hvernig tekið er tillit til skaðlegra áhrif á sjálfbærni í fjárfestingum. Tilgangurinn er að gera fjárfestum kleift að taka upplýstar fjárfestingarákvarðanir.
Til að fjárfestingarráðgjöf og ákvarðanir byggist á yfirgripsmiklum upplýsingum leitast Kvika eignastýring eftir því að samþætta sjónarmið um umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti (UFS þætti) inn í greiningu fjárfestingarkosta og er það hluti af hefðbundnu áhættumati félagsins. Áhættumatið getur verið breytilegt eftir mismunandi eignaflokkum og fjárfestingarstefnum. Þá hefur verið gripið til ýmissa aðgerða til að tryggja samþættingu sjálfbærniáhættu í fjárfestingarferla og má finna lýsingu á þeim í sjálfbærniáhættustefnu Kviku eignastýringar og stefnu um ábyrgar fjárfestingar.
Stefna um ábyrgar fjárfestingar
SFDR gerir kröfu um að aðilar birti og uppfæri á heimasíðu sinni upplýsingar um hvort þeir taka tillit til helstu neikvæðu áhrifa fjárfestingarákvarðana á sjálfbærniþætti (e. PAI) við fjárfestingarákvarðanir og fjárfestingarráðgjöf. Enn fremur sé það ekki gert skal upplýsa um það og tilgreina ástæður fyrir því hvers vegna og hvenær félagið hyggst taka tillit til slíkra áhrifa.
Kvika eignastýring tekur sem stendur ekki tillit til neikvæðra áhrifa fjárfestingarákvarðana og fjárfestingarráðgjafar á sjálfbærniþætti, hvorki á einingarstigi (e. entity level) né innan einstakra sjóða. Finna má nánari upplýsingar um þá afstöðu í yfirlýsingu félagsins.
Yfirlýsing um neikvæð áhrif á sjálfbærniþætti
Starfskjarastefna Kviku eignastýringar er uppfærð árlega eftir samþykki hluthafafundar og er stefnunni meðal annars ætlað að tryggja að starfskjör samræmist gildum Kviku eignastýringar um langtímahugsun, sjálfbærni, stöðu félagsins á hverjum tíma, lögum, reglum, góðum stjórnar- og viðskiptaháttum og heilbrigðum og traustum rekstri félagsins. Í stefnunni er gert ráð fyrir kaupaukakerfi sem tekur mið af árangursviðmiðum sem ná meðal annars til sjálfbærniáhættu. Áhersla er á að starfsfólk styðji við innleiðingu á sjálfbærnistefnu í verklag innan sviða og fylgi stefnum samstæðunnar sem snerta á sjálfbærniáhættu við fjárfestingarákvarðanir og ráðgjöf.